Vellíðan og betra útlit


Húðvörurnar frá Sif Cosmetics veita heilbrigðara og frískara útlit, eru rakagefandi og græðandi og vinna gegn öldrun húðarinnar. Þær
eru þróaðir á vísindalegum grunni og innihalda EGF frumuvakann sem stuðlar að endurnýjun húðfrumna.


Hafdizz bloggar
Ég er ekki frá því að þessir EGF húðdropar séu að gera kraftaverk fyrir mig. Vildi að ég ætti fyrir og eftir mynd en eina litla hrukkan mín er farin og roðinn í húðinni er að hverfa."

Alla Bass á Facebook
Ég er alveg í skýjunum með þessa dropa ... get loksins farið að nota farða, hef ekki getað það í einhver ár :) og ekki skemmir fyrir að þetta sé íslenskt ;)."

Fansý, 52 ára
Þar sem að ég er komin á breytingaaldurinn hefur húðin í andlitinu breyst mikið að undanförnu, ég fór að fá dýpri hrukkur í kringum augnsvæðið og slæma þurrku bletti í kringum augun. Ég var búin að prófa eitt og annað til þess að losna við þurrkublettina, en allt kom fyrir ekki, meira að segja var ég búin að fá uppáskrifað smyrsli frá lækni, sem dugði ansi skammt. Síðan kynntist ég EGF húðdropunum, fékk litla prufu til þess að prófa og ótrúlegt en satt, húðin gjör breyttist, ég losnaði alveg við þurrkublettina og einnig grinkaði ansi mikið á hrukkunum, ég hef mælt mikið með þessum dropum við vinkonur mínar og held sjálf áfram að nota þá alveg klárlega. Með bestu þökk fyrir frábæra húðdropa.."

 

Nýja EGF dagkremið hjá Sif Cosmetics seldist upp á augabragði

23.9.2011
Aðeins örfáum dögum eftir að nýja EGF dagkremið frá Sif Cosmetics kom á markað, er það nú uppselt hjá framleiðanda. Dagkremið er þó enn fáanlegt í einhverjum verslunum og snyrtistofum. Reiknað er með að næsta framleiðsla af dagkreminu komi í verslanir í byrjun næsta mánaðar. Þeir sem vilja tryggja sér krem úr næstu framleiðslulotu geta skráð sig á biðlista í verslunum Hagkaups, Lyfju eða hjá öðrum söluaðilum.

Hefur ekki séð betri árangur

20.9.2011
Dr. Ronald Moy, Formaður Bandarísku húðlæknasamtakanna, segir árangurinn af notkun EGF húðdropanna frá Sif Cosmetics betri en hann hefur áður séð á 30 ára ferli sínum.

Nýtt EGF dagkrem frá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Sif Cosmetics

12.9.2011
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif Cosmetics hefur sett á markað nýtt EGF dagkrem sem er sérstaklega þróað til notkunar með EGF húðdropunum sem fyrirtækið setti á markað á síðasta ári.
ORF