EGF húðdroparnir frá Sif Cosmetics hafa vakið mikla athygli í
Ástralíu, eftir að þeir voru settir þar á markað seinni hluta
júlímánaðar. Ritstjórar tískublaða á borð við Vogue, Harper‘s Bazaar og
hins ástralska Madison létu sig t.a.m. ekki vanta á glæsilega kynningu
sem haldin var á húðdropunum í listagalleríi í Sydney, en húðdroparnir
rötuðu samdægurs á vefsíðu Harpers Bazaar.