Sif Cosmetics

Hrein vísindi - hrein fegurð

Sif Cosmetics er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki, stofnað árið 2009. Fyrirtækið þróar og selur hágæða snyrtivörur á vísindalegum grunni með VIRKNI, ÖRYGGI OG HREINLEIKA að leiðarljósi. Snyrtivörur fyrirtækisins innihalda frumuvaka sem stuðla að endurnýjun húðfrumna og veita vellíðan og betra útlit. Frumuvakarnir eru framleiddir í samstarfi við ORF Líftækni hf. sem hefur þróað einstakar framleiðsluaðferðir, byggðar á íslensku hugviti, þar sem byggfræ er notað sem smiðja til að framleiða frumuvakana.

Fyrsta vara Sif Cosmetics á markaði, EGF húðdroparnir™ eru byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði. Húðdroparnir veita heilbrigðara og frískara útlit, eru rakagefandi og græðandi  og sporna gegn öldrun húðarinnar.

Nafn fyrirtækisins er sótt í norræna goðafræði. Sif var gyðja kornræktar og fegurðar og kona þrumuguðsins Þórs. Um Sif var sagt að„slegið glampandi hár hennar gáraðist um herðar henni eins og fullþroska hveiti á akri.“

Starfsmenn Sif Cosmetics:
Brynja Magnúsdóttir – Sölustjóri, brynja@sifcosmetics.is
Eiríkur Sigurðsson – Almannatengsl, eirikur@sifcosmetics.is
Halldór Sigurðsson – Sölustjóri, halldor@sifcosmetics.is

Sif Cosmetics
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogur

Sími:   531 1000
Netfang: info@sifcosmetics.is

 

ORF