EGF húðdroparnir frá Sif Cosmetics fóru eins og stormsveipur um íslenska snyrtivörumarkaðinn síðasta vor og vinsældirnar voru slíkar að starfsfólk hafði vart undan að svara fyrirspurnum og koma húðdropunum í verslanir. Ekkert lát hefur orðið á vinsældunum hér á landi því ríflega þrjátíuþúsund flöskur hafa selst frá því EGF húðdroparnir voru settir á markað fyrir einu ári, þann 19. maí í fyrra.
Húðdroparnir hafa ekki síður vakið athygli utan landsteinanna og hafa hlotið umfjöllun í tískutímaritum á borð við Elle, Cosmopolitan, Marie Claire og frönsku og þýsku útgáfunni af Vogue, en síðastnefnda tímaritið er með mjög svo lofsamlega grein um húðdropana í júníhefti sínu.
EGF húðdroparnir eru nú þegar til sölu í 11 löndum m.a. í Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Danmörku og Hollandi, þar sem hollenska flugfélagið KLM hefur sett húðdropana í sölu í öllum flugvélum sínum. Í Frakklandi lagði lífstílsverslunin Colette línurnar með því að vera fyrsti franski útsölustaðurinn, en í Colette leggja stjórnendur mikið upp úr því að fylgjast með nýjustu straumum og stefnum og fylgjast franskir markaðurinn því vel með hvað þar fer í sölu. Í Colette seldist fyrsta sendingin af EGF húðdropunum upp á viku.
Sif Cosmetics er nú með dreifiaðila fyrir húðdropana í 42 löndum og unnið er að markaðssetningu beggja vegna Atlandsálna.