Daily Mail fjallar um EGF húðdropana

20.1.2011
Fjallað var um EGF húðdropana frá Sif Cosmetics í opnugrein í Daily Mail, einu víðlesnasta blaði Bretlands, í síðustu viku. Húðdroparnir fengu mjög jákvæða dóma blaðamanns. Meðal annars var vitnað í Antonia Brann, húðvörusérfræðing hjá snyrtivörufyrirtækinu Lumos Skincare sem segir EGF vera eitt af fáum innihaldsefnum í húðvörum sem virkar í raun og veru.
Í kjölfar umfjöllunar Daily Mail hefur verið handagangur í öskjunni hjá starfsfólki Sif Cosmetics við að svara fyrirspurnum frá öllum heimshornum um húðdropana og taka við pöntunum. Álagið var það mikið fyrst eftir útkomu greinarinnar að sölusíða dreifiaðila okkar í Bretlandi lá niðri um hríð.
Umfjöllun Daily Mail hefur einnig orðið til þess að auka umfjöllun í öðrum breskum fjölmiðlum og vefsíðum um húðdropana og hefur nokkur fjöldi greina birst undanfarna daga. Undantekningarlaust virðast viðbrögð þeirra sem prófað hafa húðdropana vera á sömu lund og þúsunda ánægðra íslenskra notenda.
Space Age Serum – Umfjöllun Daily Mail
Blogg frá notanda sem hafði efasemdir [linka á tried and tested, bloggið sjálft]

ORF