EGF húðdroparnir meðal nýjunga á Heilsa, húð, hár

2.9.2010
Sif Cosmetics verður meðal þátttakenda á sýningunni Heilsa, húð, hár sem haldin verður í Vetrargarðinum í Smáralind helgina 11. -12. september.  Sérfræðingar frá Sif Cosmetics verða á staðnum og kynna EGF  húðdropana™ og vísindin sem að baki liggja.
Húðdroparnir hafa notið  mikilla vinsælda hjá íslenskum sem erlendum notendum og ruku t.a.m. yfir 5.000 glös af EGF húðdropunum™ út fyrsta mánuðinn sem þeir voru í sölu. EGF húðdroparnir™ eru þróaðir á vísindalegum grunni og innihalda EGF frumuvaka sem hvetur endurnýjun húðfrumna. Þeir veita unglegra og frísklegra útlit, eru græðandi og veita húðinni aukinn raka.
Sýningin Heilsa, húð hár spannar allt heilsusviðið og gefst sýningargestum tækifæri til að kynnast öllu því helsta og nýjasta sem er á boðstólnum á sviði heilsu og fegurðar, auk þess sem vegleg  fyrirlestadagskrá verður í boði.
Frítt er inn á sýninguna sem verður opin frá kl. 11.00 til 18.30 á laugardag og 12.00 til 18.30 á sunnudag.
ORF