EGF húðdroparnir frá Sif Cosmetics hafa vakið mikla athygli í Ástralíu, eftir að þeir voru settir þar á markað seinni hluta
júlímánaðar. Ritstjórar tískublaða á borð við Vogue, Harper‘s Bazaar og hins ástralska Madison létu sig t.a.m. ekki vanta á glæsilega kynningu sem haldin var á húðdropunum í listagalleríi í Sydney, en húðdroparnir rötuðu samdægurs á vefsíðu Harpers Bazaar.
„Það voru allir mjög áhugasamir um EGF húðdropana. Við höfum fengið frábær viðbrögð á twitter og facebook og innan tveggja tíma frá markaðssetningu vorum við orðin „ný uppáhaldsvara“ hjá Harper‘s Bazaar“, segir Melanie Wilson, umboðsaðili húðdropanna í Ástralíu,
Ekkert lát hefur verið á vinsældum EGF húðdropanna og seldust ríflega þrjátíu þúsund flöskur af húðdropunum fyrsta árið sem þeir voru á markaði hér á landi. Sif Cosmetics er nú með dreifiaðila fyrir húðdropana í 42 löndum og unnið er að markaðssetningu beggja vegna Atlantsálna.