Reynslusögur fjögurra notenda hinna vinsælu EGF húðdropa™ hafa verið dregnar út í reynslusöguleik Sif Cosmetics sem staðið hefur yfir á vefsíðu fyrirtækisins undanfarnar vikur. Fjölmargar reynslusögur sem bárust hafa allar verið á einn veg og lýst miklum árangri af notkun dropanna. Brynja Magnúsdóttir sölustjóri afhenti fjórum ánægðum notendum húðdropanna vinninga og sýndi þeim rannsóknarstofur Sif Cosmetics og ORF Líftækni í Víkurhvarfi í Kópavogi. Í verðlaun voru dekurpakki frá snyrtistofunni Hrund í Kópavogi og EGF húðdropar™.
EGF húðdroparnir™ frá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Sif Cosmetics hafa tekið íslenskan snyrtivörumarkað með trompi frá því þeir komu á markað í maí síðastliðnum. Húðdroparnir veita heilbrigðara og frískara útlit, eru rakagefandi og græðandi og sporna gegn öldrun húðarinnar.Við þróun þeirra var áhersla lögð á virkni, öryggi og hreinleika og miðað við frábær viðbrögð þúsunda notenda er það uppskrift sem fólk kann vel að meta.

Vinningshafarnir voru: Kristín B. Gunnarsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Hólmfríður Arnar og Ingunn Björnsdóttir. Hér á eftir fara þeirra reynslusögur.
Kristín B. Gunnarsdóttir
Mér var gefin prufa af dropunum fyrir 3 vikum síðan og byrjaði strax að nota þá. Ég hafði heyrt margt gott um þá en ákvað að vonast ekki eftir kraftaverki. Það sem gerðist þó strax var að mér fór að líða miklu betur í húðinni, ekki of feit og ekki of þurr. Mér fannst nást ákveðið jafnvægi sem ég hef ekki fundið fyrir áður. Ég hafði verið með einhverjar pirringsbólur en þær hurfu á örfáum dögum. Það sem hefur gerst síðan er að sólarblettir sem voru farnir að sýna sig eru nánast horfnir og það sama á við roða í húðinni. Hún er núna með miklu jafnari lit og heilbrigðari á að líta fyrir utan það að vera silkimjúk. Ég þakka þessu eingöngu dropunum fínu frá SIF Cosmetics og hlakka til að sjá fleiri vörur frá ykkar ágæta fyrirtæki. Takk kærlega fyrir mig.
Valgerður Magnúsdóttir
Ég byrjaði að nota EGF húðdropana á hendurnar. Þar er ég með Psoriasis og sprungna húð, hafði svo sem ekki mikla trú á að þetta hjálpaði frekar en annað, en annað kom í ljós og það er bara kraftaverk, og þarf ég ekki að fela hendurnar lengur, algjört æði. Svo fór ég að bera dropana á andlitið, og viti menn það virkar þar líka, fínu línurnar eru orðnar svo fínar að þær sjást varla, og nú bíð ég eftir að sjá djúpu línurnar hverfa. Fór líka að prófa dropana á sprungur á hælunum, og fékk þessa fínu og mjúku hæla og fætur :D Mín reynsla er bara jákvæð og ætla ég að halda áfram að nota dropana, og hika ekki við að mæla með EGF húðdropum við alla sem nenna að hlusta á mig. Takk fyrir frábæra vöru sem virkar.
Hólmfríður Arnar
Ég hef notað þessa fínu dropa í 3 vikur og ég sé mun á húðinni, hún ljómar og er áferðarfallegri. Ég hef alltaf notað góð krem en var spurð um daginn hvaða krem ég notaði því húðin mín væri fallegri og meira skínandi en áður. Ég vil þakka það þessum dropum og hef verið mjög dugleg að auglýsa þá.
Ingunn Björnsdóttir
Snyrtifræðingurinn sem ég fer til með jöfnu millibili segir hrukkurnar í andlitinu á mér hafa grynnkað og einnig að þurrkurinn í húðinni sé horfinn. Síðan ég byrjaði að nota dropana hefur hún metið það svo að ég þurfi ekki andlitsbað. Það er ágætis árangur á hálfu ári.