Nýja EGF dagkremið hjá Sif Cosmetics seldist upp á augabragði

23.9.2011

Aðeins örfáum dögum eftir að nýja EGF dagkremið frá Sif Cosmetics kom á markað, er það nú uppselt hjá framleiðanda. Dagkremið er þó enn fáanlegt í einhverjum verslunum og snyrtistofum. Reiknað er með að næsta framleiðsla af dagkreminu komi í verslanir í byrjun næsta mánaðar. Þeir sem vilja tryggja sér krem úr næstu framleiðslulotu geta skráð sig á biðlista í verslunum Hagkaups, Lyfju eða hjá öðrum söluaðilum.

„Dr. Ronald Moy, formaður bandarísku húðlæknasamtakanna, sagði í Fréttablaðinu og á Stöð 2 fyrr í vikunni að virkni EGF húðdropanna frá Sif Cosmetics sé sú besta sem hann hafi séð á þrjátíu ári ferli sínum sem húðlæknir. Þessi ummæli hafa heldur betur ýtt við Íslendingum sem flykkjast nú í verslanir til að kaupa húðdropana og nýja dagkremið. Það má segja að ævintýrið frá því fyrir rúmu ári, þegar EGF húðdroparnir komu fyrst á markað, sé nú að endurtaka sig með nýja EGF dagkremið,“  sagði Björn Örvar, forstjóri Sif Cosmetics.

Ísland er ekki eina landið þar sem mikil eftirspurn er eftir vörum Sif Cosmetics. Sem dæmi má nefna að EGF húðdroparnir seldust upp á nokkrum dögum í frönsku hátískuversluninni Colette í París þegar sala þeirra hófst þar fyrr á árinu.

ORF