Nýtt EGF dagkrem frá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Sif Cosmetics

12.9.2011

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sif Cosmetics hefur sett á markað nýtt EGF dagkrem sem er sérstaklega þróað til notkunar með EGF húðdropunum sem fyrirtækið setti á markað á síðasta ári.

Nýja EGF dagkremið er silkimjúkt krem sem hentar mjög vel undir farða og viðheldur rakastigi húðarinnar. Kremið gengur hratt inn í húðina og gefur mjúka og fallega áferð. Dagkremið var sérstaklega þróað til að styðja við virkni EGF húðdropanna sem notaðir eru að kvöldi. Saman veita þessar nýju íslensku húðvörur vellíðan og betra útlit að degi sem nóttu.

Björn Örvar, forstjóri Sif Cosmetics sagði: „Ein algengasta spurningin sem við höfum fengið frá þúsundum ánægðra notenda EGF húðdropanna er hvaða húðvörur þeir eigi að nota á daginn, á móti húðdropunum á nóttunni. Við svörum nú þessari spurningu með mjög góðu dagkremi sem er ætlað að styðja við virkni húðdropanna. Það er þróað í samstarfi við svissneskt fyrirtæki með mikla reynsu af þróun húðvara og í samræmi við okkar áherslu á virkni og hreinleika. Fyrstu viðbrögð þeirra sem hafa fengið að prófa kremið hjá okkur hafa verið framar vonum og ég hlakka til að sjá viðbrögðin frá kröfuhörðum íslenskum neytendum.“

Ekkert lát hefur verið á vinsældum EGF húðdropanna og seldust ríflega þrjátíu þúsund flöskur af húðdropunum fyrsta árið sem þeir voru á markaði hér á landi. Þeir voru nýlega settir á markað í Bandaríkjunum með fjölmennri kynningu í Soho House á Manhattan þar sem yfir 50 ritstjórar glanstímarita, blaðamenn og bloggarar sem sérhæfa sig í umfjöllun um tísku og fegurð fengu að kynnast töfradropunum frá Íslandi. Markaðssetning hófst einnig nýlega í Ástralíu og þar hefur tískublaðið Harper‘s Bazaar útnefnt húðdropana sína uppáhalds snyrtivöru.

Hægt er að kaupa EGF dagkremið og húðdropana í verslunum Hagkaups og Lyfju og í betri snyrtivöruverslunum og apótekum um allt land.

Sif Cosmetics er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki, stofnað árið 2009. Fyrirtækið þróar og selur hágæða snyrtivörur á vísindalegum grunni. Snyrtivörur fyrirtækisins innihalda frumuvaka sem stuðla að endurnýjun húðfrumna og veita vellíðan og betra útlit. Frumuvakarnir eru framleiddir í samstarfi við ORF Líftækni hf. sem hefur þróað einstakar framleiðsluaðferðir, byggðar á íslensku hugviti, þar sem byggfræ er notað sem smiðja til að framleiða frumuvakana. Sif Cosmetics er nú með dreifiaðila fyrir vörur sínar í 42 löndum um allan heim.

ORF