Ómissandi fyrir umhirðu húðarinnar

7.3.2011
EGF húðdropunum er lýst sem „ómissandi fyrir umhirðu húðarinnar“ í grein sem birt var á vefnum Style.com, en vefurinn er með vinsælustu tískubloggsíðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Sú sem fór svo lofsamlegum orðum um EGF húðdropana var Lisa Libreton, yfirmaður snyrtivörudeildar lífstílsverslunarinnar Colette, sem er ein áhrifamesta lífstílsverslunin í París.

EGF húðdroparnir hafa verið til sölu í Colette sl. vikur og voru húðdoparnir efstir á blaði þegar Style.com fór þess á leit við Libreton að hún nefndi fimm uppáhalds snyrtivörurnar sínar. „Þessir íslensku húðdropar eru einfaldlega ótrúlegir. Þeir endurnæra húðina, bæta áferð hennar og veita ljóma. Þeir eru ómissandi fyrir umhirðu húðarinnar,“ hefur Style.com eftir Libreton.

ORF