Reynslusögur

Viltu deila reynslusögu? Sendu okkur línu og lýstu þinni reynslu af notkun EGF húðdropanna™.

Reynslusögur

EGF húðdroparnir™ hafa slegið í gegn hjá kröfuhörðum íslenskum neytendum og jákvæð ummæli þeirra eru okkar besta auglýsing . Hér eru nokkur dæmi:

Helma Þorsteinsdóttir

EGF Dagkremið er það allra besta krem sem ég hef prufað og ég hef prufað þau mörg, um leið og ég byrjaði að nota það, fékk ég þennan ljóma í andlitið sem ég hef verið að leita eftir ... ég er búin að nota dropana af og til í ca. ár og þeir gera kraftaverk ... þessar tvær vörur eru án efa mitt uppáhald :-))

Kristín B. Gunnarsdóttir
Mér var gefin prufa af dropunum fyrir 3 vikum síðan og byrjaði strax að nota þá. Ég hafði heyrt margt gott um þá en ákvað að vonast ekki eftir kraftaverki. Það sem gerðist þó strax var að mér fór að líða miklu betur í húðinni, ekki of feit og ekki of þurr. Mér fannst nást ákveðið jafnvægi sem ég hef ekki fundið fyrir áður. Ég hafði verið með einhverjar pirringsbólur en þær hurfu á örfáum dögum. Það sem hefur gerst síðan er að sólarblettir sem voru farnir að sýna sig eru nánast horfnir og það sama á við roða í húðinni. Hún er núna með miklu jafnari lit og heilbrigðari á að líta fyrir utan það að vera silkimjúk. Ég þakka þessu eingöngu dropunum fínu frá SIF Cosmetics og hlakka til að sjá fleiri vörur frá ykkar ágæta fyrirtæki. Takk kærlega fyrir mig.

Valgerður Magnúsdóttir
Ég byrjaði að nota EGF húðdropana á hendurnar. Þar er ég með sprungna húð, hafði svo sem ekki mikla trú á að þetta hjálpaði frekar en annað, en annað kom í ljós og það er bara kraftaverk, og þarf ég ekki að fela hendurnar lengur, algjört æði. Svo fór ég að bera dropana á andlitið, og viti menn það virkar þar líka, fínu línurnar eru orðnar svo fínar að þær sjást varla, og nú bíð ég eftir að sjá djúpu línurnar hverfa. Fór líka að prófa dropana á sprungur á hælunum, og fékk þessa fínu og mjúku hæla og fætur :D Mín reynsla er bara jákvæð og ætla ég að halda áfram að nota dropana, og hika ekki við að mæla með EGF húðdropum við alla sem nenna að hlusta á mig. Takk fyrir frábæra vöru sem virkar.

Hólmfríður Arnar
Ég hef notað þessa fínu dropa í 3 vikur og ég sé mun á húðinni, hún ljómar og er áferðarfallegri. Ég hef alltaf notað góð krem en var spurð um daginn hvaða krem ég notaði því húðin mín væri fallegri og meira skínandi en áður. Ég vil þakka það þessum dropum og hef verið mjög dugleg að auglýsa þá.

Ingunn Björnsdóttir
Snyrtifræðingurinn sem ég fer til með jöfnu millibili segir hrukkurnar í andlitinu á mér hafa grynnkað og einnig að þurrkurinn í húðinni sé horfinn. Síðan ég byrjaði að nota dropana hefur hún metið það svo að ég þurfi ekki andlitsbað. Það er ágætis árangur á hálfu ári

Flekka, 53 ára
Ég byrjaði á sterakremum í andliti um 25 ára aldur. Sérstaklega í kulda fékk ég hvítt hreistur á enni og í kringum munn og á höku. Fyrir 3 árum fóru að koma rauðir flekkir á þessa staði og svo í kulda hvítt hreistur yfir og í kringum nef sviði og kláði. Þetta var vegna ofnotkunar á sterum (ekki allir læknar sammála því). Hætti á sterunum fyrir nokkrum árum. Læknar gátu ekki útskýrt þetta. Í sumar byrjaði ég á EGF og roðinn og flekkirnir fóru alveg. Fæ samt sviða og kláða annað slagið í kringum nef. Ég mun aldrei hætta á þessum dropum þetta er þvílíkur munur. Ég vildi gjarnan geta notað þá á augnhvarmana þar sem mig klæjar svo mikið.

Erla, 38 ára
Er búin að nota EGF dropana í 4 mánuði. Fínar línur hafa minnkað umtalsvert, húðin er stinnari, þéttari og einhvernveginn miklu ferskari. Þurrkablettir hafa horfið og miklu betra jafnvægi er komið á húðina (er með blandaða húð). Fólk er alltaf að segja við mig: Mikið rosalega líturðu vel út! Það sem mér finnst líka frábært við þessa vöru: Þú notar dropana á kvöldin eftir hreinsun og svo bara einfalt rakakrem á daginn. Droparnir eru ekki „ódýrir" en málið er það að þú þarft einfaldlega lítið annað en þá fyrir húðina. Tilgangurinn með að kaupa dýr andlitskrem og augnkrem o.s.frv. er einfaldlega enginn ef maður notar þessa dropa. Mæli hiklaust með EGF húðdropunum og hlakka mikið til að sjá fleiri vörur frá Sif Cosmetics, langar alveg sérstaklega í bodylotion með þessum dropum í :o)

Lóa, 54 ára
Ég hef notað þessa fínu dropa í 3 vikur og ég sé mun á húðinni, hún ljómar og er áferðarfallegri. Ég hef alltaf notað góð krem en var spurð um daginn hvaða krem ég notaði því húðin mín væri fallegri og meira skínandi en áður. Ég vil þakka það þessum dropum og hef verið mjög dugleg að auglýsa þá.

Fansý, 52 ára

Þar sem að ég er komin á breytingaaldurinn hefur húðin í andlitinu breyst mikið að undanförnu, ég fór að fá dýpri hrukkur í kringum augnsvæðið og slæma þurrku bletti í kringum augun. Ég var búin að prófa eitt og annað til þess að losna við þurrkublettina, en allt kom fyrir ekki, meira að segja var ég búin að fá uppáskrifað smyrsli frá lækni, sem dugði ansi skammt. Síðan kynntist ég EGF húðdropunum, fékk litla prufu til þess að prófa og ótrúlegt en satt, húðin gjör breyttist, ég losnaði alveg við þurrkublettina og einnig grinkaði ansi mikið á hrukkunum, ég hef mælt mikið með þessum dropum við vinkonur mínar og held sjálf áfram að nota þá alveg klárlega. Með bestu þökk fyrir frábæra húðdropa.

Alla Bass á Facebook
Ég er alveg í skýjunum með þessa dropa ... get loksins farið að nota farða, hef ekki getað það í einhver ár :) og ekki skemmir fyrir að þetta sé íslenskt ;) 

Anna, 39 ára
Húðdroparnir eru mjög rakagefandi, ganga vel inn í húðina og þurrkublettir á andliti hafa horfið. Áferð húðarinnar er líka fallegri.

Auður 40 ára
Hrukkur hafa grynnkað og húðin er afar mjúk. 

Ágústa á Facebook
Ótrúlegir dropar! Húðin verður silkimjúk og yngist við fyrstu notkun :)

Elín 32 ára
Frábær vara - sýnilegur árangur strax.

Hafdís, 50 ára
Húðin virðist þéttari og litur jafnari og frísklegri 

Hafdizz bloggar
Ég er ekki frá því að þessir EGF húðdropar séu að gera kraftaverk fyrir mig. Vildi að ég ætti fyrir og eftir mynd en eina litla hrukkan mín er farin og roðinn í húðinni er að hverfa.

Helga á Facebook
Virkar rosalega vel á exem þurrkublettina mína :D hvílík hamingja!!

Helma á Facebook
Þessir dropar eru alveg snilld ... er búin að nota þá í aðeins tvær vikur, sé þvílíkan mun á húðinni og þeir eru á hraðri leið með að útrýma mínu vandamáli í sambandi við húðina ! Þeir fá 5 stjörnur af 5 mögulegum frá mér ;-) 

Hrafnhildur 33 ára  í Vikunni
Ég er ein af þessum sem er með „venjulega húð“ og hef ekki haft nein sérstök húðvandamál. Ég hef lengi leitað að góðu kremi í kringum augu sem er milt og svíður ekki undan. Húðdroparnir henta mér mjög vel, því ég nota þá ekki einungis í kringum augun, heldur á allt, ég nota þá alltaf á kvöldin þegar ég hef hreinsað húðina. Mér finnst húðin frísklegri eftir að ég fór að nota dropana og mæli hiklaust með þeim við allar vinkonur mínar. 

Hulda 32 ára
Húðin er frískleg og bjartari, mér finnst ég varla þurfa að nota aðrar vörur með þessum dropum. Gefur mikinn raka.

Inga 50 ára
Fékk húðdropana til prufu á fimmtugsafmælinu, - til að tryggja áfram unglegt útlit. Held að það hafi tekist.  

Kristín bloggar
Exemið sem ég hef þjáðst af bakvið eyrun hvarf á 3 dögum og þetta heldur raka í húðinni í allavegana 24 tíma. Svo var ein okkar sem notaði þetta á sprungnu hælana á sér og þetta mýkti allt svo vel upp að sprungurnar gréru á nokkrum dögum.

Kristín 40 ára
Ég sá talsverðan mun á því hversu sléttari húðin er og litlu hrukkunum hefur fækkað.

Lóa, 39 ára
Húðdroparnir gefa húðinni mjög góðan raka án þess að gera húðina feita. 

Nolan3 bloggar (á ensku)
Áreiðanlega bestu húðdropar sem ég hef nokkurn tíma prófað. Áhrifin eru undraverð – ég hefði aldrei trúað þessu. Ég hef afpantað næsta Botox-tíma. Húðið er ótrúlega miklu mýkri og stinnari. Mér finnst eins og 15 ár hafi horfið.

Ragga S  bloggar
Prófaði þessa dropa – þetta er æðislegt – ég er búin að nota þetta núna í 4 vikur. Það er búið að segja við mig fimm sinnum síðustu 2 vikurnar hvað húðin hjá mér lítur vel út. Meira segja tvisvar út í búð af fólki sem ég sé reglulega en þekkir mig ekki neitt.

Roko bloggar
Búin að prófa í 3 vikur og sé mikinn mun...var alltaf með leiðinlega þurrkubletti og búin að prófa öll heimsins rakakrem og síðan ég byrjaði að nota þessa dropa hafa þeir bara ekki látið sjá sig !!  Get líka sagt að húðliturinn er mikið jafnari en áður þannig að ég er 100% sátt :)  
 
Unnur 42 ára
Áhrif húðdropanna komu í ljós nánast frá fyrsta degi. Húðin varð stinnari og hrukkur minna áberandi.

Unnur, 64 ára í Vikunni
Ég hef notað húðdropana í nokkrar vikur. Almennt séð finnst mér droparnir gefa húðinni fallegt yfirbragð og einhver gljái er kominn sem var ekki til staðar áður. Húðin er núna silkimjúk viðkomu og augljóslega mikill raki í henni. Undanfarið hefur fólk haft orð á því hve vel ég líti út og spurt hvað ég noti eiginlega. Því mæli ég hiklaust með EGF húðdropunum við alla sem ég hitti. 

ORF