Framleiðsla í byggi
Grundvöllurinn að snyrtivöruframleiðslu Sif Cosmetics er notkun nýstárlegrar grænnar erfðatækni sem ORF Líftækni hefur þróað til að framleiða frumuvaka og önnur sérvirk prótein í byggi. Með því að framleiða frumuvaka í byggi er hægt að framleiða mikið magn af mjög hreinum og virkum frumuvökum sem henta vel í hágæða snyrtivörur. Hefðbundnari framleiðsla frumuvaka fer hins vegar fram í erfðabreyttum bakteríum, sveppum eða dýrafrumum sem ekki hentar vel fyrir snyrtivöruiðnaðinn. Slíkri framleiðslu geta fylgt ýmiskonar vandamál, svo sem vegna ofnæmisviðbragða, niðurbrots frumuvakans af völdum annarra efna, smitefna og fleira.
Kerfið sem ORF Líftækni hefur þróað á undanförnum árum byggir á því að nýta fræ byggplöntunnar sem smiðju fyrir frumuvaka. Byggið sem framleiðir frumuvakana er að öllu leyti eins og annað bygg nema að það getur kerfisbundið framleitt frumuvaka í fræjum sínum. Kerfið er öruggt og einangrað enda er yfir þúsund ára reynsla af því að bygg vex ekki villt á Íslandi, það er sjálffrjóvgandi (hver byggplanta frjóvgar sjálfa sig) og það getur ekki frjóvgað neinar aðrar íslenskar plöntur. Kerfið sem verið hefur í þróun undanfarinn áratug er þess vegna mjög vel til þess fallið að stunda afmarkaða lífefnaræktun á verðmætum afurðum.
Eftir uppskeru byggsins eru vaxtarþættirnir fínhreinsaðir úr fræjunum með nýjustu tækni og nákvæmar gæðaprófanir gerðar áður en að sölu og notkun kemur. Frumuvakar ORF Líftækni eru notaðir í margskonar læknisfræðilegar rannsóknir víða um heim, auk notkunar þeirra í snyrtivörum Sif Cosmetics.