Prófanir
Sif Cosmetics stóð fyrir könnun á virkni EGF húðdropanna™ í desember 2009 og janúar 2010. Fengnir voru 109 sjálfboðaliðar til þess að prófa tvo styrkleika af EGF húðdropunum™. Þátttakendurnir báru húðdropana á sig á hverju kvöldi í eina til fjórar vikur.
71 þátttakandi svaraði stuttri vefkönnun um áhrif dropanna á húðina. 76% þeirra sem prófuðu húðdropana með hærri styrk EGF frumuvakans voru sammála því að húð þeirra liti út fyrir að hafa yngst við notkun dropanna, 98% voru sammála því að hafa tekið eftir frískara yfirbragði á húðinni og sama hlutfall sagðist myndu mæla með húðdropunum við vini.
Könnunin leiddi einnig í ljós að þátttakendur voru ánægðari með húðdropana sem innihéldu hærri styrk EGF frumuvakans. Á grundvelli þeirra niðurstaðna var ákveðið að hærri styrkur frumvakans yrði notaður í EGF húðdropana™.
Í ljós kom að notkun húðdropanna hefur margvísleg jákvæð áhrif á húðina. Þetta á sérstaklega við um þau 30% þátttakenda sem sögðust vera með mjög viðkvæma húð. Húðdroparnir gögnuðust til dæmis mjög vel á þurrkbletti sem hurfu á nokkrum dögum með notkun dropanna. Einnig komu græðandi eiginleikar dropanna berlega í ljós og dæmi vor um að önnur og erfiðari húðvandamál hjöðnuðu eða hurfu. Þetta gefur ástæðu til frekari rannsókna á græðandi eiginleikum húðdropanna.
Skýrsla um könnun á notkun og virkni EGF húðdropa.
Langtímaáhrif EGF á hrukkur og þykkt húðar
Sif Cosmetics á í samstarfi við einn virtasta húðlækni Bandaríkjanna um klínískar prófanir á áhrifum EGF frumuvakans á húðina til lengri tíma. Mæld verða gildi fyrir dýpt á hrukkum, fínar línur í húðinni, magn kollagens og elastíns.
Vöruþróun og frekari prófanir
Unnið er af fullum krafti hjá Sif Cosmetics við þróun nýrra snyrtivara. Auk EGF frumuvakans eru margir aðrir frumuvakar í húðinni sem hafa áhrif á útlit hennar og virkni. ORF Líftækni hf. framleiðir meira en 30 mismunandi frumuvaka og verið er að kanna hverjir þeirra eru mikilvægastir fyrir útlit og heilbrigði húðarinnar og hvernig virkni þeirra er. Einnig eru könnuð áhrif mismunandi styrks próteinanna í snyrtivörum.