EGF húðdropar™
EGF húðdroparnir™ eru byltingarkennd nýjung á snyrtivörumarkaði. Þeir innihalda EGF frumuvaka sem stuðlar að endurnýjun húðfruma. Húðdroparnir veita heilbrigðara og frískara útlit, eru rakagefandi og græðandi og sporna gegn öldrun húðarinnar.
EGF húðdroparnir™ eru þróaðir á grunni vísindarannsókna á líffræði húðarinnar. Mikilvægasta innihaldsefnið er EGF frumuvakinn sem stuðlar að endurnýjun húðfrumna. Þeir innihalda einnig hýalúnsýru sem bætir rakastig húðarinnar.
EGF húðdroparnir™ henta öllum húðgerðum og eru sérstaklega góðir fyrir þurra og viðkvæma húð. EGF húðdroparnir™ innihalda aðeins níu efni sem nauðsynleg eru til að viðhalda virkni EGF frumuvakans en engin rotvarnarefni, ilmefni eða önnur óþörf aukaefni.
EGF frumuvakinn sem notaður er í EGF húðdropana™ er framleiddur í erfðabreyttu byggi af ORF Líftækni. Þessi græna tækni gerir mögulegt að nota hreinni og virkari frumuvaka í nýju húðdropana en áður hefur þekkst í snyrtivörum.