EGF dagkrem

EGF dagkrem er létt og þægilegt dagkrem sem er sérstaklega þróað til notkunar með EGF húðdropunum™. Dagkremið styður náttúruleg endurnýjunarferli húðarinnar og veitir henni nauðsynlegan raka og næringu yfir daginn. Gengur hratt og vel inn í húðina og gefur mjúka og fallega áferð. Hentar einstaklega vel undir farða.

• Inniheldur EGF frumuvaka

• Fá og örugg innihaldsefni

• Engin parabenefni

• Gefur húðinni fallegri áferð

• Hentar öllum húðgerðum

• Íslenskt hugvit – íslensk framleiðsla

Notkunarleiðbeiningar:

Best er að bera EGFdagkrem á hreint andlit og háls á hverjum morgni. EGF dagkrem hentar öllum húðgerðum.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa fyrst að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en borið er á allt andlitið.

Forðist að dagkremið berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki og sjá ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist á skuggsælum stað. Inniheldur byggseyði.

ORF