EGF húðdropar
EGF húðdroparnir™ henta fyrir andlit, augnsvæði og háls og geta komið í stað hefðbundinna næturkrema. Best er að bera 2-4 dropa á hreina húð fyrir nóttina svo þeir virki á húðina í hvíld.
Fjölmargir ánægðir notendur EGF húðdropanna™ hafa tekið eftir breytingum á húðinni eftir aðeins eftir nokkurra daga notkun, eins og auknum raka og jafnari lit. Heldur lengri tíma tekur fyrir dýpri áhrif dropanna að koma fram en innan mánaðar hafa margir notendur greint frá því að þeir taki eftir minni hrukkum og unglegri húð.
EGF frumuvakinn er náttúrulegur húðinni og virkar aðeins staðbundið á þeim stað þar sem droparnir eru bornir á húðina. Húðfrumur þekkja EGF frumuvakann og setja í gang sameindaferli þegar hann binst við yfirborð þeirra. EGF húðdroparnir™ virkja því eiginleika húðfrumanna sjálfra til þess að endurnýja sig og gefa unglegra útlit.