Spurningar og svör
Hversu lengi tekur það EGF húðdropa™ að virka?
Virknin fer eftir almennu ástandi húðarinnar og aldri, yngri húð er fljótari að taka við sér en eldri húð. Margir taka eftir breytingum eftir aðeins nokkurra daga notkun eins og auknum ljóma, raka og jafnari lit. Það tekur lengri tíma fyrir húðina að bæta innri gerð og fyrir hrukkur að minnka.
Hvenær á ég að bera EGF húðdropana™ á mig?
Best er að bera á sig EGF húðdropa™ á kvöldin, á hreina húð áður en lagst er til svefns. Þannig fær húðin frið til að vinna í því að endurnæra sjálfa sig.
Er hægt að bera EGF húðdropana™ á allar húðgerðir?
EGF húðdroparnir™ eru sérhannaðir til þess að örva virkni EGF frumuvakans, sem er óháð gerð húðarinnar. Húðdroparnir hafa sýnt jákvæða virkni jafnt á feita húð og mjög þurra húð. Vegna þess hve fá innihaldsefni eru í EGF húðdropunum™, hafa þeir reynst mörgum vel sem eru með viðkvæma húð.
Ef ég ber á mig EGF húðdropana™ á mig að kvöldlagi, þarf ég að bera á mig næturkrem á eftir?
Nei, það er ekki nauðsynlegt, EGF húðdroparnir™ eru líka rakagefandi. Það er einnig mögulegt að fita í hefðbundum næturkremum minnki áhrif EGF frumuvakans og því gefst best að bera einungis EGF húðdropana™ á fyrir nóttina.
Má ég nota farða yfir EGF húðdropa™?
Það er í lagi, en mælt er með að nota EGF húðdropa™ að næturlagi á meðan húðin er í hvíld.
Hvað á ég að nota með EGF húðdropunum™?
Við mælum með að nota EGF húðdropa™ sem næturnæringu, óþarfi er að bera á sig annað krem fyrir nóttina. Notaðu áfram þau dagkrem og aðrar snyrtivörur á daginn sem reynst hafa þér vel á meðan þú notar EGF húðdropa™.
Má ég bera EGF húðdropana™ á mig annarsstaðar en á andlit og háls?
Það er í lagi að bera á sig EGF húðdropa™ annarsstaðar en á andlit og háls.
Hvað duga EGF húðdroparnir™ lengi?
Miðað við að borið sé á andlit og háls einu sinni á dag ætti 15 ml glas (stærra glasið) að duga í um það bil 3 mánuði. Gera má ráð fyrir að 4,5 ml glasið dugi í um mánuð við venjulega notkun.
Eru EGF húðdropar™ rakagefandi?
Já, droparnir innihalda hýalúnsýru sem gefur húðinni aukinn raka og því þarf ekki að nota rakakrem á eftir EGF húðdropum™. EGF húðdroparnir™ eru sérstaklega góðir fyrir þurra og viðkvæma húð vegna þessa eiginleika. Fjölmargir notendur hafa lýst því að þurrkblettir hverfi við notkun húðdropanna.
Af hverju minnka hrukkur við notkun EGF húðdropa™?
Hrukkur minnka vegna þess að frumurnar í húðinni fara að skipta sér og vaxa og framleiðslan á millifrumuefni eins og kollageni og elastíni eykst.
Hjálpa EGF húðdropar™ til við að eyða baugum?
Fjölmargir notendur hafa séð bauga minnka eða hverfa við notkun á EGF húðdropum™.
Ég er með exem, er mælt með því að ég noti EGF húðdropa™?
Fjölmargir notendur með minni háttar exem og önnur húðvandamál hafa lýst mikilli ánægju með EGF húðdropana™. Ekki hefur þó verið gerð sérstök könnun eða rannsókn á áhrifum dropanna á exem, enda geta exem verið af mörgum gerðum og ástæðum.
Ég hef nýlega greinst með húðsjúkdóm. Ætti ég að nota húðdropana?
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að EGF frumuvakinn er öruggt innihaldsefni í snyrtivörum. Þar sem EGF virkjar frumur til endurnýjunar mælum við með því að fólk noti húðdropana í samráði við lækni, hafi það greinst með húðsjúkdóm eða aðra sjúkdóma sem gætu mögulega haft áhrif á húðina.
Er lykt af EGF húðdropunum™?
Nei, engum lyktarefnum er bætt í lausnina.
Innihalda húðdroparnar fitu eða olíur?
Nei, EGF húðdropar™ innihalda hvorki olíur né fitu, öll efnin eru svokölluð vatnsleysanleg efni. Ef þér finnst húðin feit viðkomu eftir notkun húðdropanna er líklegt að þú hafir notað of mikið af þeim.
Hvaða rotvarnarefni eru notuð í EGF dropunum™?
Engin rotvarnarefni eru notuð við framleiðslu EGF húðdropa™.
Hvert er geymsluþol EGF húðdropanna™?
Hægt er að geyma EGF húðdropa™ í a.m.k. 18 mánuði við herbergishita. Óþarfi er að geyma EGF húðdropa™ í kæli. Síðasti söludagur er prentaður á umbúðirnar.
Eru ekki öll hrukkukrem einskis nýt?
Þetta er misskilningur sem byggist á því að flestar snyrtivörur innihalda ekki mjög virk efni. Efni eins og frumuvakar eru mjög dýr í framleiðslu og þurfa sérstaka meðhöndlun, sem hefur gert það að verkum að þau hafa ekki verið mikið notuð hingað til í almennum snyrtivörum.
Ég finn að húðin hitnar aðeins þegar ég ber á mig EGF húðdropa™, af hverju er það?
Hitinn er ekki erting heldur eingöngu afleiðing aukinnar virkni í húðinni, sem stafar af auknu blóðflæði til húðarinnar.
Mér finnst eins og ég hafi fengið bólur eftir að ég fór að nota EGF húðdropana™. Getur verið að þetta tengist?
Nokkrir hafa upplifað það að fá bólur þegar þeir byrja að nota EGF húðdropa™. Húðdroparnir eru mjög virkir og eins og húðhreinsimeðferð geta þeir opnað húðina þannig að óhreinindi eigi auðveldara með að komast út. Þessar bólur hafa þá horfið á einni til tveimur vikum. Ef bólurnar fara ekki á tveimur vikum, hættið þá notkun þeirra.
Hvað eru frumuvakar?
Frumuvakar eru prótein sem eru til staðar í frumum manna og örva endurnýjun og sérhæfingu frumna. Frumuvakar eru lífsnauðsynlegir til að stýra almennu viðhaldi í líkamanum. Frumuvakarnir eru margir og af ólíkum gerðum en þeir hafa allir sína sértæku virkni fyrir sérstakar frumur eða frumugerðir.
Hvað þýðir EGF?
EGF stendur fyrir Epidermal Growth Factor. EGF er náttúrulegt prótein (frumuvaki) sem er í frumum manna og frumurnar framleiða sjálfar við almennt viðhald húðarinnar. Það EGF sem er í húðdropunum frá Sif Cosmetics er framleitt með nýstárlegum líftæknilegum aðferðum í erfðabreyttu byggi af ORF líftækni.
Hvernig er EGF unnið úr byggi?
Orfeus™ kerfið sem ORF Líftækni hefur þróað byggir á því að nýta fræ byggplöntunnar sem smiðju fyrir frumuvaka. Með aðstoð erfðatækni eru byggplönturnar fengar til að framleiða EGF frumuvakann í fræjum sínum. Þegar erfðaupplýsingar sem leiða til framleiðslu frumuvakans eru fluttar í bygg, verður til nýtt yrki af bygginu sem er eins að öllu leyti og annað bygg nema að það framleiðir þetta sérvirka prótein í fræjum sínum. Eftir uppskeru eru frumuvakarnir hreinsaðir úr fræjunum með nýjustu tækni og nákvæmar gæðaprófanir gerðar áður en að sölu og notkun kemur.
Hvernig eru Orfeus™ frumuvakar frábrugðnir öðrum frumuvökum?
Frumuvakarnir sem framleiddir eru með Orfeus™ kerfinu af ORF Líftækni eru sérstakir og frábrugðnir öllum öðrum vaxtarþáttum á markaðnum. Orfeus™ kerfið er plöntukerfi sem framleiðir prótein í fræjum byggplantna. Öll önnur fyrirtæki sem nota frumuvaka í snyrtivörur sínar, framleiða þá í erfðabreyttum bakteríum, dýrafrumum eða sveppum. Með því að framleiða EGF frumuvakann í plöntum er mögulegt að framleiða meira af hreinni og virkari frumuvaka en með öðrum aðferðum. Sé frumuvaki framleiddur í bakteríum, dýrafrumum eða sveppum ekki hreinsaður nægjanlega vel er hætta á ofnæmisviðbrögðum við notkun hans í snyrtivörum. Þessi hætta er ekki fyrir hendi við notkun frumuvaka sem framleiddir eru í byggi.
Er vísindalega sannað að EGF virki?
Fjöldi klínískra rannsókna hefur sýnt að frumuvakar hafa góð áhrif á húðina og geta framkallað breytingar. Nú stendur yfir klínísk rannsókn í samstarfi við virtan bandarískan húðlækni sem ætlað er að staðfesta hinar mörgu kannanir sem gerðar hafa verið á virkni EGF húðdropanna™.
Eru tengsl milli EGF og krabbameins?
EGF styrkir kollagen netju húðarinnar, það virkar með því að bindast ákveðnum viðtaka í húðfrumum, en þessi viðtaki þekkir einnig önnur boðefni. Engar tilraunir hafa sýnt fram á að EGF valdi æxlisvexti. Sárasmyrsl með EGF frumuvakanum í háum styrk er skráð sem lyf sem borið er á opin sár til að hjálpa þeim að gróa og boðefnið EGF og skyldir frumuvakar eru taldir algjörlega hættulausir í þeim styrkjum sem um ræðir í húðvörum. Vísindamenn hafa gert rannsóknir á erfðabreyttum músum sem framleiða EGF frumuvakann í verulegu umframmagni án þess að það hafi leitt til æxlismyndunar.
Eru til fleiri frumuvakar sem hægt er að setja í krem?
Já, fleiri en 20 frumuvakar hafa verið tengdir við snyrtivörur og notkun í snyrtivöruiðnaðinum, einnig hefur verið talað um að nota frumuvaka til að sporna gegn hárlosi. Sif Cosmetics mun halda áfram að rannsaka áhrif hinna ýmsu vaxtarþátta og þróa nýjar vörur með mismunandi virkni.
Hver er munurinn á EGF BIOeffectTM og EGF BIOeffectTM plús?
Í könnun sem gerð var á virkni húðdropanna á Íslandi voru prófaðir tveir styrkleikar EGF frumuvakans. Hærri styrkur, sem kallaður var EGF BIOeffectTM plús í könnuninni gaf betri niðurstöður og það er sá styrkur sem nú er markaðssettur undir heitinu EGF BIOeffectTM . Þeir dropar sem nú eru á markaði eru því í raun „plús-útgáfan“.
Er erfðabreytt bygg í húðdropunum?
Já, nýstárleg erfðatækni sem ORF Líftækni hefur þróað í byggi er lykillinn að því að hægt er að framleiða EGF frumuvakann í nægjanlegu magni og nægjanlega virkan og hreinan til að hægt sé að nota það magn af honum í snyrtivörur sem nauðsynlegt er til að virkni frumuvakans njóti sín til fulls. Húðdroparnir innihalda því seyði af fræjum erfðabreytts byggs með EGF frumuvakanum. Aðrir framleiðendur frumuvaka framleiða þá í erfðabreyttum bakteríum, dýrafrumum eða sveppum sem gefa afurðir sem almennt eru ekki taldar heppilegar í snyrtivöruiðnaði og geta til dæmis valdið ofnæmisviðbrögðum.
Eru EGF húðdroparnir™ „lífrænir“
Það fer eftir því hvaða merking er lögð í orðið „lífrænir“. EGF húðdroparnir™ eru þróaðir á vísindalegum grunni, framleiddir á ábyrgðarfullan hátt og innihalda aðeins hrein, einföld og örugg lífræn innihaldsefni en engin rotvarnar-, lyktar- eða litarefni. Virka efnið, EGF frumuvakinn, er framleitt í erfðabreyttu byggi af ORF Líftækni í öruggu og einangruðu framleiðslukerfi. Droparnir eru því mjög hrein og lífræn snyrtivara. Erfðatækni og vísindi eru grundvöllur fyrir framleiðslu húðdropanna og því falla þeir ekki í flokk með svokölluðum „lífrænt“ vottuðum vörum.
Er óhætt að nota snyrtivörur með erfðabreyttu innihaldi?
Já. Prótein sem framleidd eru í erfðabreyttum lífverum eru að engu leiti frábrugðin öðrum próteinum. Frumuvaka á borð við EGF er t.d. að finna í kjöti og mjólk.
Er nanótækni notuð við framleiðslu EGF húðdropanna™?
Nei. Engin nanótækni er notuð í framleiðslu EGF húðdropanna™. Frumuvakar eru stórar sameindir sem ekki fara út í blóðrásina þegar þeir eru bornir á húð. Nanótækni er fyrst og fremst notuð í sólarvörn af snyrtivöruiðnaðinum.